Leiksýning
Hin mikla leiksýning
var loks á enda.
Eins og logandi blys
hafði leikur minn risið
í hamslausri gleði
og friðlausri kvöl,
uns hann féll á ný
í skoplegri auðmýkt
til upphafs síns.
Það var lífið sjálft,
það var leikur minn.
Og ég leit fram í salinn
og bjóst við stjórnlausum fögnuði
fólksins.
En þar var enginn.
Og annarleg kyrrð hvíldi yfir
auðum bekkjunum.
Steinn Steinarr
...litla sætan ljúfan góða...
...nei, aldeilis ekki! Ég er ekki ljóshærð lengur, ég er „rót“hærð!
Undirbúningurinn fyrir roadtripið norður á bóginn er kominn á flug. Ég er þeim mun spenntari með þá ákvörðun að slá næstu dögum upp í kæruleysi og skella mér norður í ruglið :)
Prófin nálgast óðfluga. Mér finnst ég ekki hafa lært neitt. Það er leiðinlegt að segja það en hvað á ég eiginlega að vera búin að læra? ...Einhver?
Höfuðið snýst í hringi og nær engri festu.
Fékk þó einar gleðifréttir áðan sem munu halda mér gangandi í einhvern tíma. Þetta mjatlast allt saman!
Hef lítið sem ekkert unnið í myndunum mínum, sem er ekki eins gleðilegt, en það hefur svo sem ekki verið mikill tími til þess.
Kaflinn um skýrslugerð í mínu lífi hefur verið settur á pásu, mér til mikillar gleði :) Og mun nú kaflinn um Leiðabók taka við þangað til á mánudag þar sem kaflinn um Málstofu tekur yfir í tvo daga! WOoHOo! Gleðiefni...nei...!!
Sjá þessa blessuðu lönguvitleysu!!
- ertu með hellu?
Hef einungis hálfa heyrn í augnablikinu...hellan hefur tekið sér bólfestu í eyrum mínun og leyfir mér einungis að heyra þegar henni henntar. Dálítið spennandi ef við horfum á það þannig, hvað fæ ég að heyra í dag??
Er búin að mennta mig dálítið í klassískri kvikmyndasögu. Myndir á borð við CryBaby, My Fair Lady og Breakfast at Tiffany´s hafa fengið að rúlla í spilaranum.
Mætti í 60´s partý í gær. Fór í kjól, setti hárið upp og málaði mig afar mikið.
Fór heim eftir um það bil eina og hálfa klukkustund.
Sátt við sjálfa mig fyrir að hafa ekki látið undan lönguninni og farið á tjúttið. Enda er hvorki tangur né tetur af heilsu í mínum líkama.
Örkennsla í fyrramálið. Hef enn ekki ákveðið mig hvað ég ætla að fræða bekkinn minn um. Eitthvað verður það að vera sem ég kann það er eitt sem víst er.
Myndaði dömurnar í gær. Sápukúlumyndir og 60´s stíll. Hlakka til að kíkja á afraksturinn.
Þrátt fyrir að ég hafi ekki farið niður í bæ í gær þá sat ég nú ekki aðgerðalaus.
Bjó mér til nýja myndasíðu, sem er að vísu enn í vinnslu en samt búin að formast eitthvað áleiðis.
Átti orðið ágætt safn í tölvunni og fannst ég þurfa að gera eitthvað við það. Valdi myndir héðan og þaðan, gamlar og nýlegar, elstar þó síðan í september 2005.
www.flickr.com/photos/telma-yr
Pókerklúbbur: Þuríður
Í fyrstu virtist þetta ætla að verða hinn siðsamlegasti leikur...en svo laumaðist öryggi yfir hópinn og sumir meira að segja ofmetnuðust. Ákölluðu veturinn af mikilli orku. Þeir sem voru hógværir og skynsamir enduðu betur en hinir. Unnu meira að segja.
Það borgar sig ekki alltaf að vera hugrakkur.
Stundum á maður að pakka.
Ég settist til borðs full væntingar. Ég hafði nefnilega fengið kennlsu. Snemma á laugardagsmorguninn síðasta sat á móti mér ungur maður, með það eitt að leiðarljósi að kenna mér póker. Andinn var "kokký" og hugurinn í stíl. Ég hugsaði með mér að nú væri ég einu skrefi á undan lýðnum. Ég misreiknaði mig. Gekk ósköp vel á parti...halaði inn svörtum aur. Átti mikið. En svo átti eg lítið.
Ég tapaði ekki.
En ég vann ekki heldur.
Ég "næst-tapaði".
Ungi maður: viltu kenna mér meira?
Maður spyr sig?
1. hluti: http://www.youtube.com/watch?v=ffaLd1dkq2U&feature=related
2. hluti: http://www.youtube.com/watch?v=s8HUyy5qJzw&feature=related
Var það ekki einhver spámaður sem sagði 7. október vera dagur heimsenda?
Rotterdam
Þegar heimilisfólkið í Úthlíðinni ákvað að skreppa niður í bæ bjóst það aldeilis ekki við móttökunum sem það fékk á útidyramottunni. Þar sat þessi líka fína ROTTA og hugaði að sárum sínum. Hún hafði að öllum líkindum orðið fyrir því óláni að lenda í gini kattar eins sem nýtur þess að sniglast hér í kringum húsið í leit að góðgæti. Þetta er orðinn einn stór bardagavöllur!
Alveg grunlaust um afleiðingar símtalsins, ákvað heimilfólkið að best væri að snúa sér til æðri manna og hringdi frökenin beint á borgina sem á hrós skilið fyrir skjót viðbrögð. Innan 15 mínótna var mættur hugaður maður með plasthólk að vopni, sem drap rottuna og flutti hana á brott!
Til að gera þennan annars ágæta bardaga ennþá áhugaverðari þá þurfti heimilisfólkið ekki að greiða krónu $$
Þetta var lífsreynsla mikil, með þær afleiðingar að gluggar hér á heimilinu verða lokaðir framvegis nema um þá sitji vörður. (Það eru opnar vaktir alla daga nema þriðjudaga, sem eru fullbókaðir líkt og seinnihluti fimmtudaganna).
Endurvakning
Laglega röðin
Ég negli og saga og smíða mér hús!
Jáhá! Seint koma sumir en koma þó! Fannst þetta orðið ansi slappt hjá mér þar sem mánuður er langt liðinn síðan ég dritaði hér inn síðast. Heill hellingur hefur runnið til sjávar og heilt hús risið.
Takk fyrir pennt...já ég segji það og skrifa. Það er langt komið blessað kotið í/á Stórhólnum góða...hehe! Þetta hefur svona skotgengið hjá blessuðum Kanada-mönnunum sem voru fluttir inn til landsins í verkamannavinnuna góðu. Annars þá hafa þeir tekið sig til og hrist all svakalega uppí djamm-menningunni á Dalvíkinni...nú er maður viðbúin allskyns uppákomum. Sem dæmi get ég nefnt þegar Telma skellti sér í heimsókn í brandaraland...já og gaf Björk! Já þetta er nú kannksi ekki frásögu-færandi nema af því að manngreyið bara hreinlega gleypti við þessu....þannig SORRY Björk þú bara ert lofuð gæskan! HEHHEHE
Held ég hafi nú aldeilis tekið við mér í djammheiminum...já ekkert slor á þeim bænum. Er búin að taka hérna helgi eftir helgi og stefni nú bara ekkert á að hætta í bráð. Iss nei, fann mér þennan annars ágætis djammfélaga í henni Björk (sjáum nú samt hvað það endist, aldrei að vita nema eiginmannsefnið haldi í hana föstum tökum) og við erum búnar að standa saman í gegnum súrt og sætt núna síðustu helgar. É´fílaða!
Annars þá eru nú þeim mun merkari fréttir á boðstólnum...Konný frænka átti litla dömu 1. maí síðastliðinn sem hefur fengið nafnið Rakel Lea Reynisdóttir og hún Heiða Pálrún mín átti svo líka litla dömu aðeins 5 dögum fyrr eða þann 26. apríl og svo til að enda þessa upptalningu þá kom Díana Hrund með dömu númer tvö hjá sér þann 16. mars sem heitir Sara Sif Símonardóttir. Þvílíkar blómarósir sem þetta nú eru. Svo er bara að bíða og sjá hvað hún Jónína gengur með undir belti...ég segji strák...alveg 100%
En já svo er Júró á næsta leiti...vona sannarlega að Eiki komi sér í aðalkeppnina...æji já ég vona það! Það bara yrði svo gaman! Annars þá á ég allt eins von á að við bara sitjum eftir. En það verður tjúttað hvort sem er :)
Er að fíla mig hérna ein heima í ró og næði áður en ég fer og díla við unglýðinn...læt nú samt heyra í mér fljótlega...AHAHHAHA þessi var góður!
Bless kex kornflex...
